Tröð fasteignasala kynnir s. 511-2900 iðnaðarhúsnæði til sölu eða leigu að Koparsléttu í Reykjavík. Erum með gott 2.294 m² iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði á tveimur hæðum til sölu eða leigu og afhendingar skv. samkomulagi. Í grunninn er um er að ræða stálgrindarhús, sem er um 2.037 m² að grunnfleti, auk 257m² skrifstofu- og starfsmannaaðstöðu á 2. hæð á steyptri gólfplötu. Jarðhæðin skipist í 1.752m² vinnusal með 9 m lofthæð auk 285m² í þjónustubyggingu tengd vinnusalnum, sem er aðalaga lagerhúsnæði auk inngangs, sepnnistöðvar og inntaksrýma. Aðal vinnusalurinn er með um 9m lofthæð og einum 5 innkeyrsluduyrum, en 4 af þeim eru um 5m háar og ein um 7m há, sem eykur notkunarmöguleika hússins. Í salnum eru lökkuð gólf og öflug lýsing eftir endilöngu í loftum, auk þakglugga sem veita birtu inn í salinn. Vinnusalurinn er útbúinn öflugum nokkurra tonna hlauupakött, sem er hreyfanlegur eftir endilöngum vinnusalnum. Í húsinu er 10 MW spennistöð (háspenna- lágspenna). Önnurhæðin er fullinnréttuð með dúk á gólfum og niðurtekin loft með innfelldri lýsingu. Á 2. hæðinni er innréttuð starfsmannaaðstaða með sturtum, stór kaffistofa ásamt skrifstofurými. Lóðin er fullfrágengin með malbikuðu bílaplani allt um kring.
Áhugasamir hafið samband við sölumenn okkar í s. 511-2900 og pantið skoðun, eða fáið nánari upplýsingar.
Trod.is ..................................... slóðin að réttu eigninni.