Tröð og Leigulistinn s. 511-2900 kynna 383m² brúttó iðnaðarhúsnæði til leigu, eða sölu að Krókhálsi í Reykjavík. Erum með 383m² brúttó iðnaðar- og lagerhúsnæði að Krókhálsi til sölu eða leigu og afhendingar skv. samkomulagi. Húsnæðið er að mestu í einum opnum sal sem er ca. 14 x 22,5m og inn í hann er innkeyrsludyr sem er um 3,2m x 4,1m (h x b), en lofthhæð í húsnæðinu er um 3,5m. Auk salarins er smá anddyri, eða útbygging, sem getur nýst sem afgreiðsla og/eða skrifstofuaðstaða. Snyrting og ræstikompa í sameign. Flóttaleið um bakgang. Flúrósent lýsing í loftum og steingólf. Áhugasamir hafið samband við sölumenn okkar og pantið skoðun í s. 511-2900
trod.is .......................... slóðin að réttu eigninni.