Tröð fasteignasasla kynnir veitingahús með löngu vínveitingaleyfi til sölu staðsett ofarlega á Klapparstíg í hjarta Reykjvíkur:Erum með veitingastað til sölu með tækjum og innbúi, sem er með langtíma leigusamning um þekkt húsnæði á besta stað í hjarta Reykjavíkur til afhendingar strax. Staðurinn selst með vínveitingaleyfi III, þar sem leyfður opnunartími er til 4:30 og gefur það nýjum eiganda tækifæri á að hefja starfsemi í húsinu með skömmum fyrirvara. Skráð stærð hússiins er 239m², en óskráð er um 90m² staðsettir í veitingatjaldi og útihúsi, sem nýtast hvoru tveggja að fullu með veitingastaðnum. Alls er því um að ræða um 330m², sem skiptast í 266m² veitingahús (176m² + 90m²) á 2 hæðum, ásamt 64m² fjögurra herbergja íbúðar á efri hæð. Ath. að möguleiki er á að útvega leigusamning með íbúðinni. Skipulag húsnæðisins gerir það auðvelt að reka tvo eða fleiri veitingastaði undir sama þaki og býður þannig upp á að tveir eða fleiri veitingamenn taki sig saman, nú eða jafnvel einn aðili sem vill samþætta tvo staði á einum stað.
Áhugasamir hafið samband við Guðlaug s. 896-0747 og fáið frekari upplýsingar, eða til þess að fá að skoða húsnæðið. Tröd.is ............................... slóðin að réttu eigninni.